Stjórn Sveitamenntar hefur ákveðið að auka framlag sjóðsins til námskeiða og annarra fræðsluverkefna hjá sveitarfélögum og stofnunum þeirra.
Frá og með 1. júlí 2010 mun Sveitamennt styrkja slík verkefni um 100% af kostnaði í stað 75% eins og verið hefur. Hér er um að ræða styrk sjóðsins til þeirrar fræðslu sem sveitarfélög og stofnanir þeirra bjóða starfsmönnum sínum upp á hverju sinni. |